Heim
Skráðu kílómetrastöðu bílsins
Uppfærðu kílómetrastöðu langtímaleigubílsins þíns hér, án þess að hafa samband við okkur.
Frá 1. janúar 2026 er greitt kílómetragjald af öllum bílum. Gjaldið er reiknað út frá kílómetrastöðu bílsins, og sem eigandi bílsins skilar Brimborg reglulega inn kílómetrastöðu til Samgöngustofu. Með því að skrá stöðuna hér hjálpar þú okkur að hafa hana rétta.
Kílómetrastaðan sést á mælaborði bílsins. Sláðu inn bílnúmerið, kennitölu leigutaka (eða fyrirtækisins sem leigir bílinn) og stöðuna eins og hún stendur á mælinum, í heilum kílómetrum.
Gengur ekki að skrá? Hafðu samband við okkur og sendu okkur mynd af mælaborðinu með bílnúmerinu.






